Opið er fyrir umsóknir um starfsnám í lögreglufræði hjá mennta- og starfsþróunarsetri lögreglu. Gert er ráð fyrir að 40 nemendur hefji starfsnám í janúar 2020. Umsóknarfrestur er til og með 2. september 2019 og skal sækja um rafrænt hér að neðan. Samhliða umsókn skal senda vottorð frá lækni samkvæmt staðli mennta- og starfsþróunarseturs lögreglu til Vinnuverndar ehf., Holtasmára 1, 201 Kópavogi. Auk þessa þurfa umsækjendur að standast þrekkröfur og annað sem tilgreint er hér að neðan. Til að koma til greina þurfa umsækjendur að hafa staðist eftirfarandi áfanga við Háskólann á Akureyri fyrir lok desember 2019: 1) LRF0176160 Inngangur að lögreglufræði, 2) LÖG0176100 Inngangur að íslenskri lögfræði og 3) VIH0106100 Vinnulag í háskólanámi. Umsóknir sem berast innan auglýsts umsóknarfrests eru teknar til meðferðar, en aðrar ekki.
Almennu skilyrðin eru eftirfarandi samkvæmt 38. gr. lögreglulaga nr. 90/1996 og reglugerð um mennta- og starfsþróunarsetur lögreglu nr. 221/2017:
- Að vera íslenskur ríkisborgari.
- Að vera 20 ára eða eldri.
- Að hafa ekki gerst brotlegir við refsilög, þetta gildir þó ekki ef brot er smávægilegt eða langt er um liðið frá því að það var framið, né hafa sýnt af sér háttsemi sem getur rýrt það traust sem lögreglumenn verða almennt að njóta.
- Að standast kröfur um andlegt og líkamlegt heilbrigði, sbr. læknisvottorð og sálfræðimat.
- Að standast kröfur um þrek og styrk skv. viðmiðum sem mennta- og starfsþróunarsetur setur.
- Hafa lokið stúdentsprófi eða annarri sambærilegri menntun.
- Umsækjendur skulu hafa fullnaðarskírteini fyrir B-flokk og gild ökuréttindi.
Til að sannreyna hvort viðkomandi uppfylli skilyrði b-liðar 1. mgr. 38. gr. er mennta- og starfsþróunarsetri lögreglu heimilt að afla upplýsinga úr sakaskrá og málaskrám lögreglu. Umsækjendur sem uppfylla öll almenn skilyrði auk annarra inntökuprófa eru boðaðir til viðtals hjá Mennta- og starfsþróunarsetri lögreglu.
Fyrirspurnir skal senda á netfangið starfsnam@logreglan.is
Umsækjendur skulu kynna sér umsóknarferlið og mat á umsóknum í handbók hér. Upplýsingar um þrekpróf sem fara fram í október 2019 má finna hér.
Rafræna umsókn má finna hér, eyðublað fyrir læknisvottorð má nálgast hér.