Sí – og endurmenntun

Símenntun

Námskeið


Mennta- og starfsþróunarsetur lögreglu

Mennta- og starfsþróunarsetur lögreglu heldur símenntunar- og sérnámskeið fyrir starfsfólk lögreglu. Leitast er við að hafa bæði fjölbreytt framboð fræðslu og kennsluhátta. Boðið er upp á staðnámskeið, vefnámskeið og lengra nám.

Framboð námskeiða og hlekk á forsíðu fræðslukerfis má finna hér á síðunni.

Við bendum starfsfólki lögreglunnar vinsamlegast á að hafa samráð við yfirmann vegna þátttöku á námskeiðum sem haldin eru á vinnutíma.

Allar nánari upplýsingar veita Soffía Waag Árnadóttir með netfangið swa01@logreglan.is sími 444-2458 og Hrafnhildur Jóhannesdóttir með netfangið hj03@logreglan.is sími 444-2521

Fræðsludagskrá MSL


Fræðsludagskrá haustönn 2024

Hér er yfirlit fræðsludagskrá MSL fyrir haustönn 2024 (birt með fyrirvara um breytingar):

Skráning fer fram í gegnum fræðslukerfi ORRA hjá Fjársýslunni þannig að námskeið eru vistuð  í fræðslusögu þátttakenda. Hægt er að nálgast leiðbeiningar vegna skráning hér að neðan . Athugið að það er einnig hægt að nota rafræn skilríki til innskráningar.

Yfirlit námskeiða og skráning fer fram í gegnum Fræðslukerfi ORRA, þar má jafnframt finna yfirlit allra námskeiða og skráningu.

Forsíða fræðslukerfis ORRA má nálgast með því að smella HÉR

CEPOL námskeið


European Union Agency for Law Enforcement Training

CEPOL (European Union Agency for Law Enforcement Training) er miðlægt menntasetur fyrir starfsfólk lögreglu í löndum Evrópubandalagsins. Mennta- og starfsþróunarsetur lögreglu hefur gert samning við CEPOL sem gerir starfsfólki lögreglunnar á Íslandi kleift að sækja sér námskeið og fræðslu hjá CEPOL. Námskeiðin eru bæði vefnámskeið og staðnámskeið. Hvað staðnámskeið varðar innheimtir CEPOL ekki námskeiðsgjald en þátttakendur þurfa sjálfir að greiða ferðakostnað, gistingu og uppihald. Starfsþróunarsjóðir styrkja að öllu jöfnu starfsmenn til slíkrar þátttöku.

CEPOL skipuleggur um 100 námskeið, vinnustofur og ráðstefnur ár hvert. Fjölbreytt námskeið CEPOL má finna í námsskrá sem gefin er út á ári hverju. Sérstaklega er bent á fjölbreytt vefnámskeið og Webinars sem Cepol hefur yfir að bjóða.

Yfirlit námskeiða hér að neðan má finna dagskrá  námskeiða og fræðslu hjá CEPOL fyrir árið 2022.   

Hér  að neðan er hnappur til að fara á vefsíðu CEPOL þar sem er að finna þá fræðslu sem er núna á döfinni hjá CEPOL.

Tengiliður CEPOL á Íslandi er Soffía Waag Árnadóttir, fyrir nánari upplýsingar og skráningu vegna CEPOL námskeiða sendið tölvupóst á swa01@logreglan.is eða hringið í síma 444-2458

Frontex


Landamærastofnun Evrópu

Landamærastofnun Evrópu – FRONTEX – starfrækir þjálfunareiningu sem gefur bæði út kjarnanámsskrá fyrir þjálfun landamæravarða í Evrópu. Að auki stendur FRONTEX fyrir sérhæfðum námskeiðum á fjölda sviða tengdum landamæravörslu.

Tengiliður við FRONTEX er Landamærasvið ríkislögreglustjóra


NORDCOP – Nordic Cooperation in Police Education

Mennta- og starfsþróunarsetur er í samvinnu við menntastofnanir sem fara með lögreglumenntun á Norðurlöndunum, Danmörku, Finnlandi, Noregi og Svíþjóð. Markmiðið er að auka samstarf milli landa á sviði mennta- og fræðslumála og stuðla að nemendaskiptum milli landa sem og uppbyggingu á faglegu starfi sem fram fer í vinnuhópum utan um hvert verkefni.