Sandra Sif - LSS

Löggæslu- og lögreglufræði

Lögreglustarfið getur oft á tíðum verið mjög krefjandi starf en það er hins vegar einnig mjög gefandi og fjölbreytt. Enginn dagur er eins. Eftir að ég byrjaði að starfa í lögreglunni fann ég það fljótt hvað starfið heillaði mig og átti vel við mig. Mér þótti starfsumhverfið skemmtilegt, verkefnin spennandi og mig langaði að læra

Lesa meira »

Opið fyrir umsóknir í lögreglufræði

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í lögreglufræði fyrir verðandi lögreglumenn við Háskólann á Akureyri en námið hefst í ágúst 2022. Um er að ræða tveggja ára 120 ECTS eininga diplómanám. Gert er ráð fyrir fjölgun nemenda í náminu að þessu sinni en síðastliðið haust voru teknir inn 50 nemendur. Umsóknarfrestur er til og með 31.

Lesa meira »

Dagatal CEPOL fyrir fræðslu 2022

Nú er dagatal CEPOL fyrir staðnámskeið 2022 komið út. Það má finna hér á síðunni undir námskeið – alþjóðlegt samstarf – CEPOL. Stútfull dagskrá af spennandi námskeiðum. Smellið HÉR til að sjá dagskrá CEPOL

Brautskráning í Lögreglufræði 2021

Laugardaginn 12. júní síðastliðinn brautskráði Háskólinn á Akureyri 38 lögreglufræðinema með diplómapróf í lögreglufræðum. Þá brautskráðust einnig 37 kandídatar með BA próf í lögreglu- og löggæslufræðum, margir þeirra starfandi sem lögreglumenn. Athöfnin tókst vel en ekki var hægt að taka móti gestum og var henni því streymt á veraldarvefnum. Heiðursgestur brautskráningarinnar var Kolbrún Benediktsdóttir, varahéraðssaksóknari.

Lesa meira »

Fræðsludagskrá haustannar 2021

Þá er fræðsludagskrá MSL fyrir haustönn 2021 komin út. Eins og áður þá fara skráningar og nánari upplýsingar um námskeiðin fram í fræðslukerfi ORRA, allar leiðbeiningar um skráningu og nánari upplýsingar um námskeiðin er að finna í yfirlitinu hér á vefsíðu undir “námskeið” .  

Fyrri hluta inntökuprófa lokið

Nú er nýlokið fyrri hluta inntökuprófa í starfsnám hjá lögreglu en inntökuprófin eru fyrr á ferðinni í ár en undanfarið, vegna nýs fyrirkomulags á lögreglufræðináminu hjá HA. Breytingin fellst í því að starfnámið byrjar strax á haustmisseri fyrsta árs í staðinn fyrir á vormisseri. Þetta þýðir að einungis þeir sem valdir verða til að hefja

Lesa meira »

Umsóknarfresti lokið í lögreglufræði árið 2021

  Á miðnætti 9. apríl síðastliðinn var lokað fyrir umsóknir í diplómanám í lögreglufræði við Háskólann á Akureyri. Alls sóttu 232 einstaklingar um í námið að þessu sinni, sem er frábært og sýnir að mikill áhugi er fyrir hendi hjá stórum hópi fólks að leggja stund á þetta skemmtilega en jafnframt erfiða nám. Námið er

Lesa meira »

Dagskrá – námskeið CEPOL 2021

Nú liggur fyrir dagskrá námskeiða og fræðslu hjá CEPOL fyrir árið 2021. Hér á vefsíðunni undir:  Námskeið – alþjóðasamstarf – CEPOL má finna nýjustu útgáfu með fjölbreyttum námskeiðum bæði staðnámskeiðum og fjölda webinars.

Dagsetningar inntökuprófa vegna umsókna í starfsnám haustið 2021

Umsóknarfresti í starfsnám í lögreglufræði lýkur 9. apríl en eins og fram hefur komið er sótt um í lögreglufræði í gegnum heimasíðu Háskólans á Akureyri. Búast má við að einhvern tíma taki að fara í gegnum umsóknir m.t.t. almennra skilyrða samkvæmt 38. gr. lögreglulaga. Sendur verður tölvupóstur til umsækjenda þegar þeirri vinnu lýkur, með upplýsingum

Lesa meira »

Umsóknir í starfsnám opna 15.febrúar

Opnað er fyrir umsóknir um starfsnám í lögreglufræði hjá mennta- og starfsþróunarsetri lögreglu (MSL) 15.febrúar næstkomandi. Gert er ráð fyrir að 44 nemendur hefji starfsnám í september 2021. Umsóknarfrestur er frá 15.febrúar 2021 til og með 9.apríl 2021 og skal sækja fyrst um rafrænt hér að neðan í gegnum heimasíðu Háskólans á Akureyri (HA). Standist

Lesa meira »