Opnað hefur verið fyrir umsóknir í lögreglufræði

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í lögreglufræði fyrir verðandi lögreglumenn fyrir næstkomandi skólaár. Umsóknarfrestur er til og með 26. mars 2024. Sótt er um á heimasíðu Háskólans á Akureyri, hér.

Allar upplýsingar varðandi umsóknarferlið er að finna hér á heimasíðu mennta- og starfsþróunarseturs lögreglu. Fyrri hluti inntökuferils hefst í byrjun apríl á þrekprófi, skriflegu frásagnarverkefni og sálfræðiprófi. Seinni hluti inntökuferilsins fer fram í lok apríl og byrjun maí. Gert er ráð fyrir því að endanleg niðurstaða varðandi hverjir komast inn í námið liggi fyrir um mánaðamótin júní/júlí.  

Fyrirspurnir varðandi námið og umsóknarferlið er hægt að senda á unak@unak.is og starfsnam@logreglan.is.