Í dag, 8. jannúar 2018, var haldið námskeið fyrir leiðbeinendur í starfsþjálfun lögreglufræðanema. Fyrsti árgangur lögreglufræðanema Háskólans á Akureyri mun nú hefja starfsþjálfun hjá lögregluembættum landsins fram á vor. Hátt í 40 leiðbeinendur sátu námskeiðið sem mun halda áfram rafrænt á kennsluvef HA (moodle). Við hjá mennta- og starfsþróunarsetri lögreglu óskum annars árs nemunum góðs gengis í starfsþjálfuninni og hlökkum til að sjá þá aftur um miðjan maí.