Heimsókn til lögreglunnar í Milton Keynes og Lecstershire

Fulltrúar Mennta- og starfsþróunarseturs lögreglu og Háskólans á Akureyri heimsóttu Lögregluna í Leicester í dag og Lögregluna í Milton Keynes í gær. Í Bretlandi þjálfar hvert lögreglulið sitt starfsfólk út frá viðmiðum frá College of Policing. Markmið heimsóknanna var því bæði að kynnast betur uppbyggingu og starfsemi einstakra deilda innan lögreglunnar, sem og þjálfun innan lögreglu.

Hér má sjá umfjöllun um heimsóknina ytra.

Hér má sjá nokkrar myndir úr heimsókninni.