Í kjölfar þess að neyðarstigi almannavarna var lýst yfir í síðustu viku hefur samgangur bæði innan og á milli lögregluembætta verið takmarkaður. Þetta hefur óhjákvæmilega áhrif á allt fræðslustarf MSL.
Vegna neyðarstigs almannavarna vegna COVID-19 þarf mennta- og starfsþróunarsetur lögreglu að grípa til eftirfarandi ráðstafana:
- Öll námskeið fyrir starfsfólk lögreglu sem áttu að fara fram nú í vor hefur verið frestað til haustsins.
- Starfsnámi lögregufræðinema við HA hefur verið frestað eða það endurskipulagt.
- Öll staðbundin námskeið CEPOL og fundir hafa verið felldir niður til a.m.k. 13. apríl.
- Búið er að fresta skiptinámi lögreglunema á Norðurlöndunum (við áttum að taka á móti hópi í apríl).
- Búið er að fresta öllum fundum í NORDCOP samstarfinu og skólastjórafundi Norðurlandanna.
- Búið er að fresta öllum námskeiðum FRONTEX í mars mánuði hið minnsta.
Nú er unnið að því að endurskipuleggja námskeið og nám á komandi haustönn en þá heldur einhver verkefnavinna áfram í lengra námi okkar með stuðningi leiðbeinenda í fjarvinnu. Frekari upplýsingar veita leiðbeinendur í lengra námi MSL.
Forgangsverkefni okkar hjá MSL, í samstarfi við leiðbeinendur embættanna, verður að tryggja að útskriftanemar í lögreglufræði við HA nái að ljúka starfsnámi sínu svo ekki komi til tafa á útskrift sem fyrirhugðu er í júní n.k.