Fræðsludagskrá í september

Frá því að Mennta -og starfsþróunarsetur lögreglu (MSL) tók til starfa í janúar s.l hefur verið gríðarlega góð þátttaka á þá fræðslu dagskrá sem MSL hefur boðið upp á.

Alls hafa 822 starfsmenn sótt þá 29 viðburði sem menntasetrið hefur staðið fyrir, sem ber að fagna. En svona góðar viðtökur setursins getum við þakkað góðu samstarfi og áhuga lögreglustjóra og starfsfólki lögreglunnar á málaflokknum.

Dagskrá námskeiða er að finna hér á síðunni undir flokknum námskeið.