Ágætu umsækjendur,
COVID-19 heldur áfram að setja sinn svip á samfélagið og í ljósi þess að samkomubann mun a.m.k. ríkja til 4.maí n.k. og aðstaða til að æfinga eftir því, höfum við hjá menntasetri lögreglunnar (MSL) í samráði við Háskólann á Akureyri (HA) ákveðið að seinka fyrri hluta inntökuprófa.
Inntökupróf verða haldin síðustu vikuna í júní eða dagana 22.-26.júní.
Með fyrirvara um að umsækjendur standist skilyrði, þ.e. kröfur um heilbrigði, hreint sakavottorð, bakgrunnskoðun, gild ökuréttindi og skilyrði HA, þá stúdentspróf eða sambærilega menntun, eru þeir umsækjendur boðaðir í inntökupróf þar sem framkvæmd eru þrekpróf en jafnframt eru umsækjendur látnir þreyta sálfræðipróf og ritunarverkefni þessa sömu daga.
Umsóknarfrestur í starfsnám MSL og í lögreglufræði fyrir verðandi lögreglumenn við Háskólann á Akureyri er óbreyttur. Umsóknarfrestur er til og með 4. maí 2020.
Við hvetjum alla umsækjendur til að halda áfram að undirbúa sig en nú reynir á að halda fókus sem er einmitt stór þáttur lögreglustarfsins.
Gangi ykkur sem allra best,
Starfsmenn HA og MSL.