Opnað er fyrir umsóknir um starfsnám í lögreglufræði hjá mennta- og starfsþróunarsetri lögreglu (MSL) 15.febrúar næstkomandi. Gert er ráð fyrir að 44 nemendur hefji starfsnám í september 2021.
Umsóknarfrestur er frá 15.febrúar 2021 til og með 9.apríl 2021 og skal sækja fyrst um rafrænt hér að neðan í gegnum heimasíðu Háskólans á Akureyri (HA). Standist umsækjandi skilyrði HA um háskólavist fær hann póst í gegnum umsóknargátt sína þar sem hann getur haldið áfram og sótt um starfsnám hjá MSL. Umsóknir sem berast innan auglýsts umsóknarfrests eru teknar til meðferðar, en aðrar ekki.
Almennu skilyrðin eru eftirfarandi samkvæmt 38. gr. lögreglulaga nr. 90/1996 og 2. mgr. 6. gr. reglugerðar um mennta- og starfsþróunarsetur lögreglu nr. 221/2017:
- Að vera íslenskur ríkisborgari.
- Að vera fullra 20 ára eða eldri, þegar starfsnám hefst 6.september 2021.
- Að hafa ekki gerst brotlegir við refsilög, þetta gildir þó ekki ef brot er smávægilegt eða langt er um liðið frá því að það var framið, né hafa sýnt af sér háttsemi sem getur rýrt það traust sem lögreglumenn verða almennt að njóta.
- Að standast kröfur um andlegt og líkamlegt heilbrigði og standast læknisskoðun trúnaðarlæknis samkvæmt fyrirliggjandi kröfum sem mennta- og starfsþróunarsetur lögreglu setur reglur um í samstarfi við háskóla.
- Að standast kröfur um þrek og styrk skv. viðmiðum sem mennta- og starfsþróunarsetur setur.
- Hafa lokið stúdentsprófi eða annarri sambærilegri menntun.
- Umsækjendur skulu hafa fullnaðarskírteini fyrir B-flokk og gild ökuréttindi.
Umsækjendur sem koma til greina í starfsnám MSL þurfa að undirgangast læknisskoðun.
Umsækjandi ber sjálfur kostnað af læknisskoðuninni.
Umsækjendur skulu kynna sér umsóknarferlið og mat á umsóknum í handbók hér og um þrekpróf hér.
Sótt er um rafrænt í gegnum heimasíðu Háskólans á Akureyri hér.
Til að sannreyna hvort viðkomandi uppfylli skilyrði b-liðar 1. mgr. 38. gr. er mennta- og starfsþróunarsetri lögreglu heimilt að afla upplýsinga úr sakaskrá og málaskrám lögreglu. Umsækjendur sem uppfylla öll almenn skilyrði auk annarra inntökuprófa eru boðaðir til viðtals og önnur verkefni hjá mennta- og starfsþróunarsetri lögreglu.
Fái umsækjandi inngöngu í starfsnám MSL þarf hann að ljúka almennu skotvopnanámskeiði á vegum Umhverfisstofnunar á eigin kostnað áður en starfsnám IV hefst.
Fyrirspurnir skal senda á netfangið starfsnam@logreglan.is