Þrælahald nútímans – Ráðstefna um mansal 14. september

Starfsgreinasamband Íslands, ásamt Mennta- og starfsþróunarsviði lögreglunnar, lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu og Reykjavíkurborg, mun þann 14. september 2017 standa fyrir ráðstefnunni Þrælahald nútímans. Fjöldi sérfræðinga á sviði löggæslu, saksóknar og verndar fórnarlamba koma erlendis frá og miðla af reynslu sinni. Þá mun Robert Crepinko frá Europol fjalla sérstaklega um skipulagða glæpastarfsemi varðandi mansal í Evrópu. Fólk sem vill dýpka þekkingu sína á málaflokknum er hvatt til að taka daginn frá en nánari dagskrá verður birt síðar.