Mennta- og starfsþróunarsetur lögreglu vill vekja athygli umsækjenda um starfsnám hjá lögreglu á að læknisfræðileg viðmið vegna ADHD/ADD voru uppfærð 15. júlí og eru nú eftirfarandi:
Greiningin ADHD/ADD getur verið útilokandi þáttur, sérstaklega hjá einstaklingum sem eru á lyfjameðferð vegna ADHD. Hafi umsækjandi fyrri sögu um slíka greiningu þarf viðkomandi að leggja fram vottorð sérfæðilæknis sem lögð verður til grundvallar mati trúnaðarlæknis í hverju tilviki.