Búið er að opna fyrir umsóknir í lögreglufræði hjá Háskólanum á Akureyri

Þann 15. febrúar síðastliðinn opnaði fyrir umsóknir í lögreglufræði við Háskólann á Akureyri en umsóknarfresti lýkur 26. mars. Strax hefur þó nokkur fjöldi umsækjenda skilað inn umsóknum sem gefur góð fyrirheit um framhaldið.

7. apríl hefjast inntökuprófin í námið en þau verða haldin í Reykjavík og er þeim skipt upp í tvo hluta, fyrri hluti snýr að almennum þrekprófum, sálfræði- og skriflegum prófum og sá síðari fellst í viðtali en þau hefjast í byrjun maí.

Nánari upplýsingar um skipulag inntökuferilsins og námið sjálft má finna hér á vefnum hjá okkur og á vef HA