Útskrift í fangavarðanámi

Þann 13. desember síðastliðinn útskrifuðust 20 nemendur úr Fangavarðaskólanum við hátíðlega athöfn í húsnæði Mennta- og starfsþróunarseturs lögreglunnar.

Mikil ánægja og gleði ríkti hjá útskriftarnemum við athöfnina en um er að ræða eins árs nám og sem byggist upp fjarnámi og kennslu staðlotum sem fara fram í Mennta- og starfsþróunarsetri lögreglu. Í náminu bættu nemendur við þekkingu sína og færni í starfi og einnig verkfærum í kistu sína sem munu hjálpa þeim við að gegna því mikilvæga starfi sem fangaverðir sinna í þágu almannaheilla.

Starfsfólk MSL óskar ný útskrifuðum fangavörðum innilega til hamingju með áfangann og farsældar í starfi.