Á dögunum átti starfsmaður Menntaseturs lögreglunnar leið um Vík í Mýrdal og leit inn í heimsókn til lögreglunnar. Þar var fyrir Egill Jafetsson lögreglumaður sem sér um starfsstöðina þar. Egill er einn á vakt og sér um löggæslu á þessu svæði. Athygli vakti hvað það eru margir ferðamenn á svæðinu á þessum tíma. En þess má geta að um 1000 gistirými eru á svæðinu og voru þau fullbókuð. Það er því í mörgu að snúast hjá Agli og áhugavert að sjá starfsemina á Vík.
![](https://menntaseturlogreglu.is/wp-content/uploads/2022/02/EgillJafetsson_logreglumadurVik-e1539602898954-768x1024.jpg)
![](https://menntaseturlogreglu.is/wp-content/uploads/2022/02/EgillJafetsson_logreglumadurVik-e1539602898954-768x1024.jpg)