Fjölbreytt fræðsla fyrir lögreglumenn – Peter Collins

Dagana 6.-9. mars hélt Peter Collins réttargeðlæknir fjögur námskeið fyrir starfsfólk lögreglu og fleiri tengd embætti.

Þannig fengu þátttakendur fræðslu um sálfræði kynferðisbrotahegðunar, samningatækni, sálfræði öfgahópa og fræðslu um vellíðan (wellness) í starfi. Einnig fengu nemendur í lögreglufræðum að njóta góðs af þekkingu Collins en hann ræddi við þau um samskipti við fólk með geðrænan vanda.

Góð þátttaka var á öll námskeiðin og góður hljómur gerður að fyrirlestrum Collins