Í dag lauk námskeiði í skýrslutökum af fólki með einhverfu. En kennari á námskeiðinu var íslandsvinurinn Phil Morris sem hefur þjálfað starfsfólk lögreglunnar í Manchester í viðtalstækni í hljóð og mynd um langt skeið og er í sinni fimmtu Íslandsferð í sömu erindagjörðum. Átta rannsakendur voru valdir á námskeiðið og mæltist námskeiðið einstaklega vel fyrir. Markmið námskeiðsins var að auka skilning þátttakenda á eðli einhverfu og öðlast þannig betri þekkingu og færni í samskiptum við einstaklinga á einhverfurófi. Fjórir leiklistarnemendur frá Kvikmyndaskólanum tóku að sér að leika brotaþola þannig að námskeiðið tók á bæði bóklegum og verklegum æfingum.
Er þetta einn liður Menntasetursins til að efla þekkingu á þessum mikilvæga málaflokki innan lögreglunnar.
Námskeiðið var bæði verklegt og bóklegt
Áhugasamir þátttakendur