Umsóknir um starfsnám hjá lögreglu sem hefst í janúar 2019

Mennta- og starfsþróunarsetur lögreglu hefur opnað fyrir umsóknir um starfsnám sem hefst í janúar 2019.

Nemendur í lögreglufræði við Háskólann á Akureyri sem hafa áhuga á að sækja um starfsnám hjá lögreglu geta fylgt út umsókn rafrænt hér, UMSÓKN.

Hvetjum umsækjendur til að kynna sér vel umsóknargögn hér á síðunni og panta tíma sem fyrst hjá sínum heimilislækni til að afla læknisvottorðs (sjá eyðublað hér á vef undir læknisskoðun).

Fyrirspurnir vegna starfsnámsins sendist á menntun@logreglan.is