Frestur til að skila læknisvottorði til Vinnuverndar ehf. vegna umsókna um starfsnám framlengdur

Viljum vekja athygli á því við umsækjendur um starfsnám hjá lögreglu fyrir vorið 2020 að frestur til að skila læknisvottorði var 2. september en hefur nú verið framlengdur til 9. september 2019. Að gefnu tilefni viljum við einnig benda á að mikilvægt er að læknir stimpli hverja blaðsíðu sem hann fyllir út.

Einnig viljum við vekja athygli umsækjenda á að mikilvægt er að nýtt vottorð fyrir umsóknir um starfsnám vorið 2020 sé notað því eldra eyðublað frá fyrri árum er ekki tekið gilt.

Læknisvottorð skal senda hingað: Vinnuvernd, Holtasmára 1, 201 Kópavogi og skal merkja það með eftirfarandi hætti: „Trúnaðarlæknir – starfsnám lögreglufræðinema“.