Fræðslufundur- 24 apríl -málefni tengd vændi

Vekjum athygli á fróðlegum fræðslufundi um málefni tengdum vændi. Fræðslufundur verður haldin þriðjudaginn 24. apríl n.k um málefni tengdum vændi. Efni fundarins verður; Practical application of the law regarding the purchase of sex.  Fyrirlesarar verða tveir fulltrúar frá sænsku lögreglunni (National Operations Department) en þeir Per Englund og Stefan Adamson eru sérfræðingar í mansals málum og þá sérstaklega málefnum tengdum vændi.  Á fræðslufundinum verður farið yfir lagaumhverfi er tengjast vændi, hvernig við framfylgjum þessum lögum,  hvernig leitað er upplýsinga á netinu og hvernig eftirliti er háttað.  Umræðuhópar munu ræða hvernig hægt er að yfirfæra “sænsku aðferðina” miðað við íslenskt lagaumhverfi. Skráning er hér á síðunni undir námskeið þar má finna nánari upplýsingar og dagskrá. Einstakt tækifæri til að fræðast um þennan mikilvæga og því miður stækkandi málaflokk.