Tími
Dagsetting - 04/12/2018 - 07/12/2018
Staðsetning
Mennta- og starfsþróunarsetur lögreglunnar, 3.hæð
Flokkar
Námskeiðið er ætlað öllum þeim sem þurfa að þekkja til stjórnunar neyðaraðgerða á vettvangi. Sérstaklega er verið að horfa til þeirra sem gætu þurft að taka að sér hlutverk stjórnenda eða vera hluti af vettvagnsstjórn.
Markmiðið er að nemendur þekki almannavarnakerfið á Íslandi og stjórnstig neyðaraðgerða. Að þeir þekki skipulag og getu allra viðbragðsaðila og þær bjargir sem í boði eru. Að þeir geti eftir námskeiðið samhæft störf allra viðbragðsaðila á vettvangi stórra atburða.
Þátttakendur eru frá lögreglunni, slökkviliðinu, björgunarsveitum ofl.
Nánari námskeiðslýsingu má finna með því að smella HÉR
Lögreglustjórar tilnefna lögreglumenn frá sínu embætti.
Skráning fer fram í gegnum ORRA fræðslukerfið, vinsamlega skráið ykkur með því að smella HÉR