Starfsnám hefst að nýju

Mánudaginn 4. september síðastliðinn hófst starfsnám nr. II, í Mennta- og starfsþróunarsetri lögreglu.

Þessi myndarhópur, 46 nemendur sem leggja stund á lögreglufræði við Háskólann á Akureyri, mættu í Menntasetur lögreglu að Krókhálsi 5a og eiga fyrir höndum tvær vikur í mjög svo krefjandi námi og fjölbreyttum verklegum æfingum. Við bjóðum þau velkomin enn á ný til okkar og hlökkum til samstarfsins í vetur.