Er viðbragðskerfið sprungið  vegna fjölgunar ferðamanna á Íslandi?

Slysavarnafélagið Landsbjörg, Háskólinn á Akureyri og staða Nansen prófessors í heimskautafræðum standa fyrir ráðstefnu í tengslum við landsþing Slysavarnafélagsins Landsbjargar sem haldið verður á Akureyri dagana 19. – 20. maí 2017. Ráðstefnan verður undir fyrirsögninni: Er viðbragðskerfið sprungið vegna fjölgunar ferðamanna á Íslandi?

Á ráðstefnunni verður fjallað um þær áskoranir sem viðbragðsaðilar standa frammi fyrir vegna þeirrar miklu fjölgunar ferðamanna sem orðið hefur á Íslandi á síðustu árum. Ísland hefur margháttaða sérstöðu hvað varðar uppbyggingu innviða og þjónustu við ferðamenn, meðal annars vegna þess hve landið er strjálbýlt og einnig vegna þess að hluti hluti viðbragðskerfisins byggist á framlagi sjálfboðaliða.

Ráðstefnan verður haldin í Háskólanum á Akureyri föstudaginn 19. maí frá 09:00 til 12:00.

Frummælendur eru:
Jessica M. Shadian, Nansenprófessor við Háskólann á Akureyri og University of Toronto
Edward H. Huijbens, Prófessor við Háskólann á Akureyri
Kjartan Ólafsson, Deildarformaður félagsvísinda‐ og lagadeildar Háskólans á Akureyri
Viðar Magnússon, yfirlæknir bráðþjónustu utan sjúkrahúsa

Að loknum erindum frummælenda verða pallborðsumræður.

Í panelumræðum verða:
Smári Sigurðsson, formaður Slysavarnafélagsins Landsbjargar
Jón Gunnarsson, samgöngu‐ og sveitarstjórnar¬ráðherra
Halla Bergþóra Björnsdóttir, lögreglustjóri á Norðurlandi eystra
Eva Björk Harðardóttir, oddviti sveitarstjórnar Skaftárhrepps og hótelstjóri Hótels Laka  Ásgrímur L. Ásgrímsson, framkvæmdastjóri aðgerðasviðs Landhelgisgæslunnar
Viðar Magnússon, yfirlæknir bráðþjónustu utan sjúkrahúsa

SKRÁNING ER Á SLÓÐINNI: http://bit.ly/AKU2017